altunga.is

Sumir eru þannig gerðir að þeir fá ekki nóg af uppskriftum. Aðrir nota þær aldrei en óhætt er að fullyrða að þegar nota á nýtt hráefni er gott að geta fylgt þrautreyndri uppskrift svo árangurinn verði sem bestur. Reykt paprika hefur lítið verið kynnt á Íslandi og því verður þessi vefur notaður sem vettvangur til að deila með lesendum uppskriftum þar sem reykta La Chinata paprikan frá Altungu verður í aðalhlutverki. Einnig má finna uppskriftir á vef framleiðendanna La Chinata auk þess sem leit í leitarvélum eins og Google hér að neðan (leitarorð t.d. smoked paprika recipes)

 


Barbequesósa með reyktri papriku
Flamberaðar kjúklingabringur í la Chinata paprikusósu 
Grillaður paprikukjúklingur
Grillsósa Abdalla Hamisi
Grillsósa Sigrúnar
Grillsósa úr grískri jógúrt

Hörpuskel með appelsínusósu og reyktri papriku
Hörpuskel með reyktri papriku
Kartöflumús með reyktri papriku og steiktum hvítlauk
Nautagúllas a la Chinata
Ofnbakaður saltfiskur með reyktri papriku
Ofnsteiktur lax með reykpaprikugljáa
Ostateningar með reyktri papriku
Rækjusalat með chermouladressingu


Barbequesósa með reyktri papriku

2 msk. dökkur púðursykurBarbequekjúklingaleggir međ kúskús og bökuđum sćtum kartöflum
1 msk. Worchestershiresósa
1 tsk. balsamedik
2 dl tómatsósa
1 tsk. McGormic chilli powder
1 tsk. reykt La Chinata paprika, bitter sweet
1/2 tsk. reykt La Chinata paprika, hot

Allt hráefnið er hrært saman t.d. með töfrasprota.

Sósuna má nota á hvaða kjöt eða fiskmeti sem er og hvort sem það er grillað á útigrilli eða í ofni. 

Á myndinni eru grillaðir kjúklingaleggir sem henta barbequesósunni sérstaklega vel. Þeir eru bornir fram með kúskús og sætum ofnbökuðum kartöflum.


Flamberaðar kjúklingabringur í la Chinata paprikusósu

 
4 kjúklingabringur
1 msk. ólífuolía
½ agúrka skorin í teninga
1 rauð paprika, söxuð
8 sveppir, sneiddir
 La Chinata hot paprika 
50 ml brandí
200 ml kjúklingasoð
200 ml matarrjómi
100 ml hvítvín
salt  og pipar að smekk
 
Steikið kjúklingabringurnar í olíu á pönnu og leggið til hliðar. Steikið paprikuna, agúrkuna og sveppina í sömu olíunni og bringurnar. Setjið bringurnar aftur á pönnuna  bætið “La Chinata” paprikunni saman við og blandið vel. Hitið pönnuna, hellið brandí á hana og veltið henni svo að það fari um allt. Berið logandi eldspýtu að pönnunni og kveikið í en gætið þess að vera ekki nálægt eldfimum efnum því af þessu getur stafað nokkuð mikill logi sem þó slokknar fljótt. Bætið hvítvíni, soði og rjóma saman við og sjóðið þar til bringurnar eru tilbúnar. Saltið og piprið að smekk.
 
Berið kjúklinginn fram með hrísgrjónum og léttsoðnu grænmeti eins og gulrótum, strengjabaunum og brokkólí.
 
Fyrir 4
 
 

Grillaður paprikukjúklingur


Nanna Rögnvaldardóttir, sem allir landsmenn þekkja sem snilldarkokk og matarskríbent, á heiðurinn að þessari nýstárlegu uppskrift að grilluðum paprikukjúklingi. Uppskriftin er birt hér með góðfúslegu leyfi hennar.
 

1 heill kjúklingur, um 1,5 kg
pipar
salt
1 sítróna
1 msk reykt paprikuduft, t.d. bittersweet
½ -1 tsk kummin (cumin), má sleppa

Kjúklingurinn þerraður með eldhúspappír og kryddaður að innan með pipar og salti. Nokkrir skurðir skornir í sítrónuna og henni stungið inn í hann. Svo er hann settur í plastpoka, paprikudufti, kummini og dálitlu salti blandað saman og hellt yfir og kjúklingnum velt fram og aftur í pokanum til að þekja hann með kryddinu. Látinn bíða á meðan grillið er hitað.


Ef notað er gasgrill er slökkt á öðrum (eða einum) brennaranum þegar grillið er orðið heitt og kjúklingurinn hafður þar yfir; á kolagrilli er álbakki settur í miðið og kolunum raðað í kring, þannig að kjúklingurinn sé ekki yfir beinum eldi því þá brennur paprikan. Hann er svo settur á grillið og það haft lokað. Grilltíminn er á bilinu 1-1 ½ klst., það fer eftir stærð kjúklingsins og ytri aðstæðum – hann lengist í hvert skipti sem grillið er opnað. Í rauninni þarf ekki að opna grillið neitt nema þegar kemur að því að gá hvort kjúklingurinn er tilbúinn – en það er gott að pensla hann með olíu þegar hann er langt kominn til að fá fallegri áferð á hann.


Svo mætti líka sleppa sítrónunni en setja kjúklinginn uppréttan á bjórdós og grilla hann þannig.


Efst á síðu

  
Grillsósa Abdalla Hamisi
 
Þessi frábæra uppskrift er birt orðrétt með góðfúslegu leyfi forráðamanna  www.cafesigrun.com og hér fær reykta La Chinata paprikan að njóta sín. Hér má þó bæta við að paprikan mun fást í betri matvöruverslunum landsins og í vefverslun Altungu á þessum vef. 

l laukur, smátt skorinn
1 rauð paprika, skorin í smáa bita
3 tómatar, vel þroskaðir, skornir smátt
1 tsk duft af sætri, reyktri papriku (enska. smoked paprika (sweet), fæst í búðum sem selja mat frá Miðjarðarhafinu, fæst líka í Ostahúsinu Skólavörðustíg að mig minnir).
1 chilli, skorinn smátt (má líka nota paprikuduft eða chilliduft)
3-4 hvítlauksrif söxuð smátt
1 stk engifer (um 2-3 cm), afhýtt og saxað smátt. (Í uppskriftinni sem hann skrifaði stóð jinjer (ekki ginger) sem mér fannst hrikalega sætt).
3 msk byggmaltsíróp eða hlynsíróp (enska: barley malt syrup og maple syrup) (í upprunalegu uppskriftinni var púðursykur)
2 msk tómatmauk (enska: tomat puree)
2 msk mangomauk) (enska: mango chutney) má nota keypt en það er yfirleitt hlaðið sykri svo ég geri mitt sjálf
3 msk edik
1 tsk sjávarsalt (eða heilsusalt: Herbamare)
1 tsk karríduft
1 grænmetisteningur (ásamt 1/4 - 1/2 lítrum af vatni)

Aðferð:

Setjið allt hráefni í djúpa pönnu og látið malla í um 30 mínútur. Kælið.

Fyrir utan að vera frábær grillsósa (t.d. hægt að marinera grænmeti áður en maður grillar það ásamt því að bera sósuna fram með grilluðum mat) þá er voða gott að baka fisk með þessari sósu t.d. inn í álpappír.

Sem meðlæti fyrir 5-6.

Efst á síðu
 

Grillsósa Sigrúnar

1/2 dós grísk jógúrt
1 dós hrein jógúrt
1/3 krukka sólþurrkaðir tómatar úr olíu
3 hvítlauksrif
1 tsk. reykt paprika (hot, bitter sweet eða sweet, allt eftir því hversu „hot“ sósan á að vera)
sítrónupipar að smekk

Blandið öllu hráefninu saman með töfrasprota og berið fram með grilluðum mat, hvort heldur er kjöt, fiskur eða kjúklingur.

Grillsósa úr grískri jógúrt

Þessi uppskrift er gerð svolítið eftir hendinni með smá af þessu og pínu af hinu, allt eftir kenjum kokksins. Hún hentar sérstaklega vel með fiski, t.d. laxi eða bleikju eða kjúklingi.


Safi úr 3 appelsínum
1 dós grísk jógúrt
1 tsk. bitter sweet reykt paprikufuft 
1/2 - 1 tsk. kummin, malað,
1/2 - 1 tsk. kóríander, malaður 
1 msk. tamari sojasósa
Agave síróp að smekk
Salt og nýmalaður pipar

Sjóðið appelsínusafann niður um rúmlega helming og kælið. Setjið hann og allt kryddið í jógúrtina og hrærið vel. Smakkið og bætið í því sem ykkur finnst helst vanta þangað til grillsósan er tilbúin.

Ef þið kjósið að hafa sósuna sterka þá er ráð að nota hot papriku annað hvort í stað bitter sweet papriku eða bara til viðbótar.

Efst á síðu  


Hörpuskel með appelsínusósu og reyktri papriku

Vegna höfundaréttar verð ég að veita aðgang að þessari uppskrift með tengli á veraldarvefinn í stað þess að þýða hana eins og ég hefði viljað. Heimild til þess var synjað þegar eftir því var leitað svo eina ráðið er að setja hér tengil á vefsíðu Wholefood Market verslanakeðjunnar þar sem hún birtist.

Rétturinn kemur á óvart og er sérstaklega bragðgóður. Ekki skemmir fyrir að hitaeiningar eru fáar og hann er einfaldur í tilbúningi. Hann hentar hvort sem er sem aðal- eða forréttur. Sem forrétt er flott að bera hörpuskelfiskinn fram á spínat- og rúkkólabeði með kirsuberjatómata sem skraut og gott brauð sem nota má til að elta uppi hvern einasta dropa af ómótstæðilegri appelsínusósunni.  

 
Hörpuskel með reyktri papriku

Þessi uppskrift birtist í 24 stundum þann 23. ágúst 2008 og er birt hér með góðfúslegu leyfi höfundar, Georgs Arnars Halldórssonar matreiðslumanns.

Hráefni í paprikumauk
270 g grilluð paprika í dós
½ tsk. reykt paprikuduft
20 g smjör
2 tsk. hlynsíróp
salt og pipar eftir smekk

Skolið paprikuna og þerrið með eldhúspappír. Takið u.þ.b. 70 g af henni frá fyrir paprikukex en hitið restina varlega með smjöri í potti í nokkrar mínútur. Setjið svo paprikuna, smjörið og restina af hráefnunum í matvinnsluvél og maukið vel.

Hráefni í paprikukex
restin af grilluðu paprikunni (70 g)
2 eggjahvítur
½ tsk. reykt paprikuduft
1 msk. hveiti

Setjið paprikuna í matvinnsluvél ásamt eggjahvítunum, paprikuduftinu, hveitinu og örlitlu af salti. Smyrjið blöndunni á bökunarpappír og bakið í 140 C° heitum ofni í 20 mín. eða þar til kexið er orðið stökkt.

Hörpuskelin
Takið hörpuskel og þerrið vel. Kryddið með salti, pipar og örlitlu reyktu paprikudufti. Hitið ólífuolíu á pönnu þar til byrjar að smella í henni. Steikið þá hörpuskelina 70% á annarri hliðinni og 30% á hinni.

Berið réttinn fram með ólífuolíu, paprikumaukinu og paprikukexinu. Einnig er gott að djúpsteikja hundasúru og setja með á diskinn.

Efst á síðu

Kartöflumús með reyktri papriku og steiktum hvítlauk

Þessi kartöflumús, sem er góð bæði með kjöti og fiski, passar sérstaklega vel með gúllasi.

1 kg kartöflur
1 tsk. reykt paprikuduft (sweet eða bitter sweet)
8 msk. smjör eða ólífuolía
4 hvítlautsrif, meðalstór og söxuð
250 ml matreiðslurjómi (mjólk eða léttmjólk)
1½ tsk. salt
½ tsk. nýmalaður, svartur pipar   

Sjóðið kartöflurnar í 20 mín. eða þar til þær eru soðnar. Takið utan af þeim og stappið þær sjóðheitar ofan í pott.

Hitið paprikuduftið í litlum potti við vægan hita í 2 mín. á meðan kartöflurnar sjóða og hrærið stöðugt í á meðan. Setjið í skál og leggið til hliðar. Bræðið smjörið í potti yfir vægum hita og steikið hvítlaukinn í 12 til 14 mínútur eða þar til hann hefur brúnast. Takið af hitanum og látið standa í 5 mín.

Hrærið paprikuduftinu, smjörinu með hvítlauknum og rjómanum saman við stappaðar kartöflurnar yfir vægum hita og kryddið með salti og nýmöluðum pipar að smekk. Berið fram stax og kartöflumúsin er orðin gegnheit.   

Sem meðlæti fyrir 4

Efst á síðu

Nautagúllas a la Chinata
 
1 msk. olía
1 laukur, skorinn smátt
5 hvítlauksrif, skorin smátt
8 sveppir, skornir í sneiðar
2 sætar kartöflur, skornar í teninga
750 g nautagúllas
1½ tsk. bitter sweet La Chinata paprika
1 tsk. timjan
2 tsk. oregano
1 tsk. basilíka
1 tsk. rósmarín
½ tsk. kummin (cumin)
Cayenne pipar að smekk
400 ml nautasoð
400 g dós niðursoðnir tómatar
100 ml rauðvín
salt og pipar
 
Hitið olíu á djúpri pönnu og steikið, lauk og hvítlauk í 5 mín. Bætið sveppum út í og steikið áfram þar til þeir hafa brúnast. Bætið sætum kartöflum saman við, hrærið í og steikið í 1-2 mín. Takið af pönnunni og setjið til hliðar í skál. Steikið nautagúllasið á pönnunni án frekari olíu ef hægt er en annars með eins lítilli olíu og þið komist af með. Þegar kjötið hefur brúnast á öllum hliðum er grænmetinu bætt saman við ásamt kryddinu, soðinu, tómötunum og rauðvíninu. Látið suðu koma upp, lækkið hitann og látið malla í a.m.k. eina klst. Kryddið að smekk með salti og pipar.
 
Berið fram með kartöflustöppu eða soðnum kartöflum.
 
Fyrir 4 

Efst á síðu
 
 
Ofnbakaður saltfiskur með reyktri papriku

800 g soðnar kartöflur, sneiddar
800 g saltfiskur, vel útvatnaður, soðinn og skorinn í munnbita
4 msk. ólífuolía
safi úr tveimur appelsínum
6 hvítlauksrif, söxuð smátt
1 ½ tsk. bitter sweet reykt paprika
1 tsk. malað kummin
1 tsk. malaður kóríander
20 stk. svartar ólífur, steinlausar
hafsalt og nýmalaður, svartur pipar eftir smekk

Smyrjið ofnfast fat með ólífuolíu. Raðið kartöflusneiðunum í það og setjið saltfiskinn ofan á. Blandið öllu öðru saman og hellið yfir. Hreyfið aðeins við kartöflunum og saltfiskinum svo allar hliðar húðist. Bakið í 180°C heitum ofni í 30 mín. eða þar til rétturinn er vel heitur í gegn og farinn að brúnast.

Berið gott salat fram með þessum rétti eða borðið það á eftir eins og gert er á Ítalíu.

Fyrir 4

Efst á síðu


Ofnsteiktur lax með reykpaprikugljáa
 
1 kg laxaflak, beinlaust
4 msk. ólífuolía
4 msk. nýpressaður sítrónusafi
2 msk. hunang
1 msk. kóríanderduft
2 msk. La Chinata sweet paprika
2 msk. gróft salt
½  tsk. hvítur pipar
200 ml sýrður rjómi
 
Hitið ofninn í 200°C og fóðrið bökunarplötu með álpappír. Snyrtið laxaflakið og þurrkið með eldhúsbréfi. Skerið flakið í 5 stykki, ca. 200 gr. hvert og leggið með roðið niður á álpappírinn.
 
Blandið öðru innihaldi vel saman í skál. Hrærið helmingi af þeirri blöndu saman við sýrða rjómann og setjið í sósuskál sem seinna er borin fram með laxinum en penslið laxastykkin með hinum helmingnum. Steikið því næst laxinn í ofninum í 10 mín. Athugið að þeim tíma liðnum hvort laxinn er tilbúinn og steikið lengur ef þurfa þykir. Ath. þó að ofsteikja hann ekki því þá verður hann þurr.
 
Þegar laxinn er tilbúinn er honum lyft með fiskispaða ofan af roðinu og komið fyrir á fati eða diski og borinn fram. Gott meðlæti er kartöflumús, soðinn aspas og sítrónubátar. 
 
Fyrir 5 

Efst á síðu
   
Ostateningar með reyktri papriku
 
Harðir ostar skornir í teninga
La Chinata reykt paprika, sweet, bitter sweet eða hot eftir smekk
Extra virgin ólífuolía
 
Stráið paprikunni yfir ostateningana á bakka eða fati og úðið ólífuolíu yfir eða setjið nokkra dropa af henni á ostinn.
 
Svona ostateninga stenst enginn.
 
 

Rækjusalat með chermouladressingu


Þessi réttur á rætur sínar að rekja til landanna við sunnanvert Miðjarðarhaf, eða Alsír, Marokkó og Túnis. Þar er það fiskur og annað sjávarfang sem helst er marínerað í chermoula en einnig má nota það á kjöt og jafnvel grænmeti. Þessi uppskrift, sem er með reyktu paprikudufti, líkist hefðbundinni útgáfu frá Marrokkó en þar í landi er rík hefð fyrir því að marínera bæði fisk og kjöt í chermoula áður en það er grillað.  

80 ml kóríander, saxaður smátt
80 ml ítölsk steinselja, söxuð smátt
3 msk. sítrónusafi
1 hvítlauksrif, saxað mjög smátt
1 tsk. reykt paprikuduft (sweet)
1 tsk. malað kummin (cumin) 
1 tsk. hafsalt 
1/4 tsk. cayenne pipar 
60 ml jómfrúarólífuolía 
500 g soðin risarækja
1 dós (500 g) smjörbaunir, skolaðar og vatn látið renna af 
1 askja kokteiltómatar, skornir í tvennt
1 gul paprika, skorin í teninga 
3 stilkar sellerí, sneiddir 
180 gr fetaostur í teningum 
60 ml steinlausar kalamata ólífur 

Setjið kóríander, steinselju, sítrónusafa, hvítlauk, reykt paprikuduft, kummin, salt og cayenne pipar í stóra skál. Blandið ólífuolíunni hægt saman við og hrærið þar til allt hefur samlagast. 

Setjið annað innihald saman við og blandið varlega svo allt húðist vel. Kælið salatið undir plastfilmu í ísskáp í allt að 8 klst. áður en það er borið fram með grófu brauði. 


Rétturinn er örlítið breyttur frá uppskrift sem birt er á slóðinni: http://www.delish.com/recipefinder/charmoula-shrimp-salad-4349?click=recipe_sr 

 

 

 

 

 


Efst á síðu


Fleiri uppskriftir eru væntanlegar - fylgist með 
 
 
 
Altunga ehf • Munkaţverárstrćti 23 • 600 Akureyri • altunga@altunga.is • Sími 861 8864 • kt: 670204 2270 • VSK: 82178
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is