Altunga hefur hafið innflutning og dreifingu á sælkeravörum frá Mallorka og Spáni. Um er að ræða fimm gerðir af hágæða hafsalti og þrjár gerðir af reyktri papriku.
Hafsaltið Flor de sal de’s Trenc er framleitt af fyrirtækinu Gusto Mundial Belearides og eru eigendur þess frumkvöðlar í vinnslu hafsalts á Spáni. Saltið, sem er náttúrulegt hágæða salt, er unnið nálægt Es Trenc ströndinni í Salinas de Levante héraðinu á Mallorka. Sérstök veðurskilyrði þurfa að vera til staðar svo að saltkristallarnir sem kallaðir eru flor de sal myndist, þ.e. mikil sól, lítill loftraki og léttur vindur af suðaustan. Þá birtast glitrandi saltkristallarnir sem fleytt er ofan af sjónum í höndunum. Saltið getur verið allt frá því að vera drifhvítt á litinn í ljós bleikt og bragðið í senn bæði fíngert og öflugt. Aðeins 0,2% saltuppskerunnar frá Salinas de Levante er Flor de sal salt svo hér er tvímælalaust um að ræða besta salt sem völ er á.
Eigendur Gusto Mundial Belearides fengu Michelin matreiðslumeistarann, Marc Fons, til samstarfs við að þróa saltið og bragðefnin. Hann gerði einnig uppskriftir þar sem saltið fær að njóta sín en þær má bæði finna á vef fyrirtækisins og í bæklingi sem fylgir hverri dós af salti. Flor de sal de’s Trenc má nota á mjög fjölbreyttan hátt en hvað best er að strá því yfir kjöt, fisk eða grænmeti sem hefur verið grillað eða steikt ásamt nokkrum dropum af sítrónusafa og nýmöluðum pipar.
Flor de sal de’s Trenc er til í fimm gerðum:
Hafsalt með svörtum ólífum – olivas negras. Svörtum calamata ólífum er blandað í saltið sem hentar frábærlega vel með ýmsum réttum af Miðjarðarhafssvæðinu, svo sem pastaréttum, tómat- og mozzarellasalati, carpaccio og crostini.
Dósin inniheldur 150 g, þar af eru 30 g ólífur
Hafsalt með hibiscus. Saltið er blandað hibiscus sem unnið er úr hibiscusblóminu og hentar vel með andalifur, villibráð, nýjum geitaosti, spínats- eða klettasalati, avocado, laxi, og ýmsu öðru fiskmeti.
Dósin inniheldur 150 g, þar af eru 30 g hibiscus
Hafsalt með Miðjarðarhafskryddum. Saltið er blandað lífrænt ræktuðu rósmaríni, sari, majorani, timjani og oreganó. Það hentar einstaklega vel með bökuðum kartöflum, lambi, hvítum fiski, kjúklingi, tómötum, grænmeti og pottréttum.
Dósin inniheldur 150 g, þar af eru 30 g jurtakrydd
Hafsalt með Sri Lanka kryddum. Saltið er blandað austrænum kryddum frá Sri Lanka, þ.e. túrmerikki, cayennepipar, kummin, kóríander, fenníku, fenugreek, kanel, negul, kardimommu og svörtum pipar. Saltið setur endapunktinn þegar kjúklingur er grillaður og lamb eða fiskur steikt og kitlar bragðlaukana með angan frá Sri Lanka.
Dósin inniheldur 150 g, þar af eru 30 g krydd
Hreint hafsalt. Saltið er hágæðasalt sem fullkomnar hvern rétt.
Dósin inniheldur 200 g, handunnið salt frá sólinni á Mallorka.
Verð hverrar dósar er kr. 1.490.- með VSK.
TILBOÐ: Ef keyptar eru þrjár dósir eða fleiri er veittur 15% afsláttur.
|