Altunga er eina bókaforlagið á landinu sem hefur sérhæft sig í útgáfu matreiðslubóka. Fyrir jólin 2007 kom út stórglæsileg matreiðslubók frá Altungu sem vakið hefur verðskuldaða athygli bæði fyrir sérstaklega fallegar myndir og umbrot og einstaklega góðar uppskriftir. Í bókinni, sem ber titilinn Eldað í hægum takti, eru uppskriftir að réttum sem tekur langan tíma að matreiða og eru svo sannarlega þess virði að beðið sé eftir þeim. Það má líkja því að elda í hægum takti við það að gefa sér tíma til að stoppa og njóta ilms af rósum. Njótið þess að elda og slappa af á meðan maturinn sýður, steikist eða bakast hægt í eldhúsinu og ilmurinn læðist um húsið.
Eldað í hægum takti: Verð kr. 4.500.- m. VSK.
Að mestu hefur verið um að ræða ódýrar, litlar og aðgengilegar bækur um fjölbreytt efni. Alls hafa þrettán titlar komið út af litlu matreiðslubókunum.
Kosturinn við bækurnar er að þær eiga erindi til allra kokka, hvort sem þeir eru að feta sín fyrstu skref í eldhúsinu eða með áralanga reynslu. Réttirnir eru einfaldir og krefjast þess ekki að eldhúsið sé fullt af flóknum græjum. Hráefnið er alt aðgegnilegt í matvöruverslunum á Íslandi og þar sem um framandi hráefni er að ræða eru leiðbeiningar um hvernig megi nálgast það eða nota annað í staðinn.
Upplýsingar um næringarinnihald réttanna fylgja flestum bókunum.
Verð litlu bókanna er kr. 790.- eintakið með VSK.
TILBOÐ: Ef keypt eru 4 eintök kosta þau eins og þrjú eða kr. 2.370.- í stað kr. 3.160.- auk þess sem flutningskostnaður er felldur niður.
|