|
|
Altunga ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem hóf starfsemi sína sem bókaforlag, það eina á landinu sem sérhæfir sig í útgáfu matreiðslubóka. Nú hefur Altunga farið inn á nýjar brautir, hafið innflutning og sölu á sælkeravörum eins og reyktri papriku og eðal hafsalti frá Spáni, sett upp netverslun og vef.
Með vefnum viljum við gefa landsmönnum kost á fræðslu um vörur Altungu og deila uppskriftum að spennandi og gómsætum réttum með þeim sem áhuga hafa. Einnig er það ósk okkar að vefurinn geti orðið uppspretta fróðleiks og umfjöllunar um allt sem er matareiðslu viðkomandi hvaðanæva að úr heiminum.
|
|