altunga.is
Harissa, norðurafríska kryddblandan góða

Nýlega höfum við hjá Altungu gert tilraunir með að nota norðurafrísku kryddblönduna harissa á ýmsan máta og langar að deila reynslunni með ykkur lesendum. Fjölmargar uppskriftir eru til af harissa bæði á netinu og í matreiðslubókum. T.d. er lýsingu á harissa að finna í bók okkar Eldað í hægum takti (s. 58 og 188) og á hinum vinsæla og frábæra vef cafesigrun.com þar sem er uppskrift að harissakjúklingi.   

Við fylgdum leiðbeiningum á s. 188 í Eldað í hægum takti þegar við gerðum okkar fyrstu tilraun en þar er innihaldið tiltekið en svo verða kokkarnir að láta hyggjuvitið og reynsluna ráða för við ákvörðun hlutfalla svo harissan komi vel út. Við skorum á ykkur að prófa sjálf en birtum okkar útgáfu hér að neðan engu að síður. Uppskriftin á vefnum cafesigrún er ólík þessari og vel þess virði að prófa hana líka.

Harissa Altungu

1 rauður piparávöxtur
1 tsk. malað kummin
1 tsk. malaður kóríander
1 tsk. bitter sweet reykt paprika
½ tsk. gróft sjávarsalt
4 hvítlauksrif
100 ml ólífuolía

Allt hráefnið er maukað t.d. með töfrasprota.

Harissa má geyma í lokuðu íláti í ísskáp í einhvern tíma, líklega upp undir mánuð (en þetta er þó birt án ábyrgðar).

Saltfiskur með harissa

Harissa má nota á margvíslegan hátt. Á myndinni er t.d. steiktur saltfiskur sem lagður er á hvítlaukskartöflumús með stöppu úr sætum kartöflum og harissa notað eins og sósa.

Fleiri uppskriftir með harissa sem vert er að prófa:

http://find.myrecipes.com/recipes/recipefinder.dyn?action=displayRecipe&recipe_id=1728722

http://www.foodandwine.com/recipes/tomato-pepper-stew-with-poached-eggs-and-harissa

http://www.foodista.com/recipe/2CT3HT27/red-lentil-soup-with-harissa-paste-and-smoked-hot-paprika


Altunga ehf • Munkaţverárstrćti 23 • 600 Akureyri • altunga@altunga.is • Sími 861 8864 • kt: 670204 2270 • VSK: 82178
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is